f o r m a ehf. |
||
landslagsarkitektúr
og skipulag |
||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Fyrirtækið, forma ehf. leggur metnað sinn í að bjóða upp á faglegar, frumlegar og
hagkvæmar hönnunarlausnir við mótun landslags í samspili manns og náttúru.
Hvert verkefni er nálgast sem
sérstakt, þannig að hver heildarhönnun er einstök en ekki endurtekning á
annarri hönnun. Í hverju verkefni felst vinna við frumhugmynd. Þannig spannar verksvið allt frá hugmyndavinnu, upp í fullnaðarhönnun og útboðsgögn. Stofan veitir einnig ráðgjöf, gerir úttektir á umhverfi og hönnun
á öllum stigum skipulags. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Við leggjum áherslu á: vandaða hönnun, sérfræðiþekkingu, fagleg vinnubrögð,
eftirlit, framkvæmdasamræmingu verkefna og persónulega þjónustu. Í vinnslu er
Fyritækið er í eigu Ingu Rutar Gylfadóttur, landslagsarkitekts FILA og Bjarkar Guðmundsdóttur, landslagsarkitekts FILA. Fyrirtækið var stofnað í ágúst 2004. Eigendur Formu eru fagaðilar að félagi íslenskra landslagsarkitekta (FILA) og starfa eftir reglum FILA. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu FILA www.fila.is Rétt til að nota starfsheitið landslagsarkitekt hafa þeir einir rétt sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra skv. lögum nr. 8/1996. Stofan hefur einnig löggildingu til þess að gera séruppdrætti á sviði landslagsarkitekta skv. skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og starfsábyrgðartryggingu þar að lútandi. Auk þess að hafa réttindi og vera á lista yfir þá sem hafa rétt til gerð skipulagsáætlana sem gefinn er út af Skipulagsstofnun, sjá nánar www.skipulagsstofnun.is |